
Nú er búið að bæta við umfjöllun um fimm horfin hús á síðunni eyrarbakki.is.
Húsin eru:
- Bræðrafélagshúsið
- Íshúsið (Lefolii-verslunar)
- Slökkviáhaldaskúr á Háeyri
- Steinskot II
- Timburgeymsluhús Sigurjóns P. Jónssonar
Vonandi hafa lesendur gaman af þessu. Gott væri að fá athugasemdir ef einhverjar eru á netfangið husasaga[hjá]eyrarbakki.is.